Gatnaviðgerðir á Skagabraut
Gatnaviðgerðir á Skagabraut
11. ágúst 2025
Mánudaginn 11. ágúst er áætlað að fræsa hluta Skagabrautar. Kaflinn sem um ræðir nær frá frá Skagabraut 11 að Skagarbaut 17A.
Í kjölfarið verður skipt um efni í vegöxlum og síðar malbikað.
Búast má við umferðartöfum á meðan framkvæmdum stendur. Gert er ráð fyrir að þessar framkvæmdir standi yfir í u.þ.b. tvær vikur.
Óhjákvæmilega fylgir þessum framkvæmdum nokkuð rask og biðjum við ykkur íbúa og vegfarendur að sýna aðgát og taka tillit til framkvæmdaaðila sem sinna verkinu.